Skilmálar
Samningur
Birkiland samþykkir/staðfestir pantanir að fenginni greiðslu fyrir pantaða vöru. Um leið og greiðsla hefur borist sendum við þér tölvupóst um að pöntunin hafi verið samþykkt og þar með hefur lagalega bindandi samningur komist á á milli Birkilands og þín.
Verð og skattar
Á íslenskri útgáfu Birkilands eru öll verð gefin upp með virðisaukaskatti en aftur á móti eru öll verð gefin upp án virðisaukaskatts þegar maður er staddur inn á ensku útgáfu Birkilands. Sendingarkostnaður er lagður ofan á uppgefin verð og það er hugsanlegt að ómögulegt verði að senda vöru til einhverra staða. Upplýsingar um sendingarkostnað eru settar fram í kaflanum afhending hér á eftir. Þeir sem ekki búa á Íslandi og panta vörur hjá Birkilandi geta átt von á því að aðflutningsgjöld leggist á vöruna við innflutning hennar til viðkomandi ríkis. Birkiland hefur enga stjórn á slíkum gjöldum og er þau því greidd af kaupanda.
Vörur
Við leggjum okkur fram um að birta eins raunverulega liti og kostur er en við getum ekki ábyrgst fullkomna litalýsingu vegna takmarkana í stafrænni upplausn á mismunandi vefskoðurum. Við leggjum okkur ennfremur fram um að lýsingar og stærðartölur sé réttar en örlítið misræmi getur komið fyrir.
Afpantanir
Afpöntun er heimil ef Birkilandi berst skrifleg tilkynning um afpöntun á netfangið birkiland@birkiland.com, þar sem fram koma upplýsingar um nafn þitt og pöntunarnúmer, innan 4 virkra daga talið fá því að pöntunin barst Birkilandi. Þú þarft ekki að gefa okkur skýringar á afpöntuninni og við munum endurgreiða þér verð vörunnar að fullu. Hafi Birkiland sent vöruna til þín áður en afpöntun berst berð þú ábyrgð á kostnaði við endursendingu hennar og því að hún berist heil til Birkilands á ný. Óheimilt er að taka afpantaða vöru úr umbúðum.
Við vonum að þú verðir ánægð/ánægður með vörur sem þau kaupir í netverslun Birkilands en ef þú hefur fengið í hendur skemmda eða gallaða vöru þá munum við leitast við að útvega þér nýja vöru eins fljótt og auðið er. Við berum þó ekki ábyrgð á gallaðri eða skemmdri vöru nema tilkynning um gallann eða skemmdina berist okkur innan 4 virkra daga frá móttöku á netfangið birkiland@birkiland.com
Afhending
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspóst um afhendingu vörunnar. Þú færð vörurnar sendar heim og eru þær afgreiddar innan 4-5 daga ef þær eru til á lager hjá Birkilandi. Birkiland afgreiðir og sendir pantanir einungis á virkum dögum. Flutningskostnaður er samkvæmt verðskrá Íslandspósts á hverjum tíma.
Vörum skilað
Ef þú ert af einhverjum ástæðum ekki ánægð(ur) með vörurnar sem þú hefur keypt í Birkilandi, geturðu skilað þeim innan 7 daga frá móttöku til Birkilands og fengið þær endurgreiddar innan 30 daga. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Hafi vara skemmst í sendingu, biðjum við þig vinsamlegast að geyma umbúðirnar og vörurnar og hafa samband með tölvupósti á birkiland@birkiland.com.
Trúnaður
Þú hefur kynnt þér og ert samþykkur því að hlýta trúnaðarstefnu Birkilands (sjá undir “Öryggi”).
Lög og löghelgi
Samningurinn okkar á milli fer eftir íslenskum lögum og munu íslenskir dómstólar hafa úrskurðarvald í þeim ágreiningi sem gæti komið upp á milli okkar.
