Trúnaður og öryggi
Trúnaðarstefna og öryggi
Birkiland heitir þér trúnaði og viðurkennir mikilvægi þess að upplýsingum sem safnað er um þig sé veitt viðhlítandi vernd. Við höfum þess vegna sett okkur trúnaðarstefnu sem fjallar um hvernig við söfnum, geymum og notum upplýsingar sem þú lætur okkur í té. Stefnan gildir eingöngu á síðu Birkilands en ekki á síðum sem kunna að vera hlekkjaðar við Birkiland.
Persónuupplýsingar
Við söfnum eingöngu persónuupplýsingum um gesti Birkilands á valkvæðum grunni, og aðeins við skráningu, pöntun vöru eða almenna notkun síðunnar. Til persónuupplýsinga í þessu tilliti geta talist upplýsingar um nafn þitt, netfang, símanúmer, heimilisfang og upplýsingar um afhendingarstað. Þú getur að sjálfsögðu fengið aðgang að síðunni án þess að láta þessar upplýsingar í té. Gestir sem kaupa vöru og þjónustu í netversluninni þurfa að láta henni í té gilt kreditkortanúmer og upplýsingar um gildistíma til viðbótar við ofangreindar upplýsingar. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar fyrir okkur til þess að kaupin geti gengið eftir og gera okkur ennfremur mögulegt að veita þér upplýsingar um stöðu pöntunar.
Þegar viðskiptum þínum er lokið eyðum við upplýsingum um kreditkortanúmerið þitt og gildistíma í okkar gagnagrunnum. Þar af leiðandi þarft þú að gefa okkur upp Visa kreditkortanúmerið þitt og gildistíma í hvert skipti sem þú verslar í Birkilandi.
Hvernig verða persónuupplýsingar notaðar?
Þegar þú skráir þig á Birkilandi verður þú beðinn/beðin um að láta Birkilandi í té persónugreinanlegar upplýsingar. Upplýsingar sem þú lætur okkur í té gerir okkur kleift að senda þér skilaboð um nýjar vörur, þjónustu, sérstök tilboð eða afslætti, fréttir eða viðburði. Við munu ekki afhenda þriðja aðila upplýsingar sem þú lætur okkur í té (nema þeirra sé krafist á grundvelli laga eða niðurstöðu dómstóla). Viljir þú láta fjarlægja nafn þitt úr gagnagrunni Birkilands getur þú á sérhverjum tíma sent tölvupóst á netfangið birkiland@birkiland.is undir viðfangsefninu „afskráning“.
Varðveisla persónuupplýsinga
Við munum eingöngu safna persónugreinanlegum upplýsingum að því marki sem sanngjarnt getur talist í ljósi lögmætra viðskiptasjónarmiða, og við munum viðhalda til þess að tryggja öryggi þeirra upplýsinga sem þú lætur okkur í té. Með því að nota síðuna hefur samþykkt trúnaðarstefnu Birkilands. Ef þú getur ekki fallist á trúnaðarstefnu Birkilands, þá skalt þú vinsamlegast ekki nota síðuna. Við áskiljum okkur rétt til þess að gera breytingar á stefnunni.
Öryggisráðstafanir/öryggisstaðlar
Upplýsingar sem þú slærð inn í rafræna pöntunareyðublaðið okkar og sendir yfir netið með því að nota vefskoðara eins og Internet Explorer eða Mozilla Firefox eru dulkóðaðar. Upplýsingarnar eru dulkóðaðar með SSL samskiptum og flutningur upplýsinganna til okkar er tryggður þannig að við getum eingöngu sótt upplýsingarnar.
Öryggi vefskoðarans þíns
Taktu eftir því að vefskoðarinn þinn sýnir https: fremst í vefslóðinni í stað hins hefðbundna http: Það táknar að þú ert á dulkóðuðu vefsvæði. Þú getur ennfremur gengið úr skugga um öryggi skjals með því að líta eftir öryggistáki í stöðulínunni neðst til hægri (öryggistáknið veltur á gerð og útgáfu vefskoðarans sem þú ert að nota en venjulega er öryggistáknið hengilás eða gullinn lykill). Þessi atriði veita þeir tryggingu fyrir því að vefskoðarinn þínn og serverinn okkar hafi örugg samskipti. Upplýsingar sem þú slærð inn í rafræna pöntunareyðublaðið okkar eru dulkóðaðar á leiðinni til okkar og þær eru því ónothæfar fyrir þriðja aðila. Þegar Secure Payment Server hefur tekið á móti kreditkortaupplýsingunum þínum eru þær sendar dulkóðaðar beint til SecPay server og þær verða því aldrei varðveittar á Birkiland vefsvæðinu. Öryggis þeirra persónuupplýsinga sem þú lætur okkur í té skiptir okkur höfuðmáli. Þess vegna notum við dulkóðunartækni til þess að tryggja að persónu- og kreditkortaupplýsingar komist ekki í hendur þriðju aðila þegar þær eru senda yfir netið.
