Eygló er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún útskrifaðist úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands árið 2005. Eftirstarfsþjálfun hjá Bernard Wilhelm, AsFour and Jeremy Scott stofnaði hún sitt eigið vörumerki árið 2006. Hönnun Eyglóar hefur verið lýst sem kvenlegri og sígildri og hún reynir að notast við náttúruleg efni eins og unnt er hverju sinni.