Dyggðateppið
Lýsing:
Dyggðateppið (155 cm x 210 cm) er einstaklega hlý værðarvoð sem er nægilega stór til þess að umvefja tvo einstaklinga og í leiðinni að minna á að ástunda dyggðir. Hugmyndin að Dyggðateppinu kemur frá íslensku dyggðaklæði sem talið er að sé frá fyrri hluta 18. aldar en það var notað sem rúmábreiða.
Dyggðateppið er þakið nútíma dyggðum. Dyggðirnar eru á íslensku: Trú, heilsa, jákvæði, þolinmæði, hreinskilni, heiðarleiki, fjölskyldu-og vinabönd.
Teppið er unnið úr íslenskri ull og eru sauðalitirnir einungis notaðir en þannig heldur ullin sinni náttúrulegu mýkt.
Stærð: 155 cm x 210 cm
Litir: grátt, brúnt og svart


