Tools you bake
Lýsing:
Í heila öld hefur hin þýska Brauer fjölskylda rekið málmsteypu í Berlín. Með tímanum höfðu safnast upp í verksmiðjunni ógrynni timburmóta sem áður formuðu handgerða hversdagshluti eins og hjólkoppa, skerma og dósalok.
Hrafnkell og Sebastian sáu í þeim tækifæri til framleiðslu á nýrri sérvöru, “Tools you bake” sem er sería sex mismunandi kökuforma úr áli. Eftir hundrað ára þjónustu í annarra þágu framleiðir verksmiðjan nú í fyrsta skipti varning undir eigin nafni.
Að auki gefa formin mismunandi sætabrauði einkennandi útlit sem er mikill kostur fyrir metnaðarfulla kökugerðarmenn.
Stærðir:
Bessy (15 cm x 15 cm x 8 cm)
Stubbak (26 cm x 26 cm x 6,5)
Wiesser (20 cm x 20 cm x 10)


