Birkiland, íslensk hönnunarverslun.
Beint í:

Vík Prjónsdóttir

Vikprjonsdottir-logo_small

Vík Prjónsdóttir er heilluð af sagnahefð, innblásin af hegðun náttúrunnar og nið borgarinnar. Hún trúir á hið yfirnáttúrulega og ber virðingu fyrir því ósýnilega. hún er kölluð Vík Prjónsdóttir og hefur einbeitt sér að því að vinna með staðbundna menningu, hráefni og framleiðslu.

Vík Prjónsdóttir er samvinnuverkefni hönnuðanna Brynhildar Pálsdóttur, Guðfinnu Mjallar Magnúsdóttur og Þuríðar Rósar Sigurþórsdóttur og prjónaverksmiðjunnar Víkurprjóns.

Verkefninu er ætlað að styrkja ímynd íslensks iðnaðar sem notar sjálfbært hráefni. Hugmyndir hönnuðanna eru innblásnar af íslenskum hefðum og þjóðsagnararfi.

Allar vörurnar eru unnar úr hreinni íslenskri ull sem er hlý, létt og vatnþolin.


Vörur eftir Vík Prjónsdóttir





Merki

Hönnuðir


english | aðgangur | kaupa

0 vörur í körfunni